Lítið kríli á leiðinni

Lífið er yndislegt

29.09.2008 20:57:24 / stinatora

37. vikan runnin upp.

Jújú það voru víst komnar 37 vikur sléttar sl. föstudag. Þannig að nú ætti þetta að fara að styttast ekki nema 3-5 vikur eftir. Vonum samt að þær verði færri en fleiri. Guðmudur Helgi er fæddur á 38. viku og 3 degi.
Ég fer í skoðun á morgun og allir að krossleggja fingur að ég fái viku í viðbót heima. Við stefnum á að fara norður á Akureyri til að bíða 10. eða 11. október. Við fáum íbúðina föstudaginn 10. en það fer eftir ýmsu hvort við förum þá strax eða seinna.
Fyrirvaraverkirnir eru ennþá að hrjá mig og verða það örugglega þangað til krílið kemur í heiminn. Þeir hafa aðeins eitt kvöld náð að verða reglulegir en með svo langt á milli að ég var ekkert að stressa mig yfir þessu.
Hreiðar og Guðmundur Helgi eru að fara suður um helgina. Þeir fljúga frá Egilsstöðum á fimmtudaginn og heim aftur á sunnudaginn. Hreiðar er að fara í vinnuferð með Bílum og Vélum (vinnunni) en Guðmundur ætlar að skella sér í skírnina hans Emils Óla og ætlar að gista hjá Ástu og Matta. Honum hlakkar rosalega mikið til.
Jæja þangað til næst................

Vika 37

Það gæti lekið vökvi úr brjóstunum þínum.  Það getur lekið við það að þú heyrir barn gráta en það einnig lekið alveg upp úr þurru.  Það sem lekur er broddurinn sem inniheldur prótein og mótefni.  Broddurinn er hin fullkomna fæða fyrir nýfætt barn, það besta sem barnið fær áður en mjólkin fer að myndast.  Barnið getur ekki hreyft sig mikið um þar sem plássið er alltaf að verða minna og minna.  Spörkin og bylturnar eru hins vegar kraftmikil.  Nú er mjög mikilvægt fyrir þig að fá eins mikla hvíld og svefn og þú mögulega getur.  Fæðingin verður auðveldari og þú verður fljótari að jafna þig ef þú ert vel úthvíld. 

Barnið heldur áfram að þyngjast.  Litlu lungun eru að verða tilbúin til að starfa.  Barnið hefur nú þétt grip með höndunum og kyngir um 750 ml af legvatni á dag. Það vegur nú um 2,7 kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um 32,5 sm.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 18:08:35 / stinatora

Fæ að vera heima í viku í viðbót.

Jújú allar prufur og mælingar komu betur út en í síðustu viku. Þanngi að ég fæ að vera heima allavega í viku í viðbót.
Barnaherbergið er nánast tilbúið. Skiptiborðið er komið saman og þangað inn, kommóðan líka. Nú er bara eftir að hengja upp gardínurnar og skreyta veggina. En það verður ekki gert fyrr en krílið er komið í heiminn og við vitum hvort kynið það er, hvort skreyta eigi í bleiku eða bláu.

Í dag eru komnar 36 vikur og 3 dagar. Og fyrirvaraverkirnir eru orðnir frekar sterkir. En krílið er ekkert á leiðinni enn sem komið er :cry: :$

Vika 36

 
Móðir

Héðan í frá ferðu væntanlega vikulega í skoðun þar til barnið fæðist. Þetta getur þó verið misjafnt eftir því hvar þú býrð.

Þú ferð væntanlega að hafa svolitlar áhyggjur af sjálfri fæðingunni. Gott ráð er að ræða við ljósmóðurina eða lækninn ef þú hefur miklar áhyggjur.


Barn

Barnið er næstum fullþroskað en með hverjum deginum sem líður verður barnið betur undir það búið að lifa utan legsins.

Í þessari viku er algengt að barnið skorði höfuðið niðri í mjaðmagrindinni en ef það gerist ekki strax er engin ástæða til að hafa áhyggjur. Mörg börn skorða sig ekki fyrr en í viku 40 eða jafnvel rétt fyrir sjálfa fæðinguna.


Lengd

Frá höfði að rassi mælist barnið um 34 cm og frá toppi til táar er það um 46 cm langt.

Þyngd

Barnið vegur um 2750 grömm.

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 18:28:26 / stinatora

OMG það eru 10 vikur...........

síðan ég skrifaði síðast.
En héðan er fullt að frétta. Krílið er væntanlegt eftir rétt rúmar 4 vikur, við flutt í nýtt hús.
Smelltum okkur í að kaupa eitt stykki einbýlishús. Hreiðar og pabbi hans eru á fullu að klára að parketleggja, eru núna að leggja listana meðfram veggjunum. Parketið kom LOKSINS eftir hálfsmánaðar bið þess vegna var ekki búið að leggja það áður en við fluttum.
Guðmundur er alsæll í nýja húsinu. Hann er með tvö herbergi, eitt til að sofa í og annað til að leika sér í. Ekki slæmt.

Krílið okkar er væntanlegt (eins og ég sagði) eftir rétt rúmar 4 vikur. Tengdamamma hefur það á tilfinningunni að það verði septemberbarn, verði ekkert að bíða eftir settum degi. Ef þetta barn verður eins og bróðir sinn kemur það eftir sléttar 2 vikur. HMMMM kannski ég ætti að fara að þvo barnafötin og gera krílaherbergið klárt.
Ég er ennþá voðalega róleg yfir þessu öllu saman. Vaggan er komin upp og búið að setja hana saman. Enn á eftir að finna rúmið niðri í bílskúr og setja það saman og ath dýnuna. Býst samt við því að láta krílið sofa í vöggunni til að byrja með, en er samt lítið farin að velta því fyrir mér.

Í morgun fór ég til læknis og hann kyrrsetti mig fram yfir helgi. Ég á að vera í hvíld og ekki gera neitt. Hann ætlar að endurskoða þessa ákvörðun á mánudaginn þegar ég fer í mæðraskoðun. Læt ykkur vita eftir skoðunina.

Jæja þangað til næst.........
Bæjó.

Vika 35

Barnið er farið að þrýsta það mikið á magann þinn svo það getur verið betra fyrir þig að borða oftar en minna í einu.  Ef þú ert með bjúg sem getur verið alveg eðlilegt þá eru skórnir ef til vill orðnir of þröngir.  Það getur verið gott að vera í sandölum nema þegar þú þarft að vera skóm sem styðja vel við ökklann.  Það er gott að ganga eitthvað á hverjum degi ef þú getur.  Til að minnka bjúg á fótum er gott að sitja þegar tækifæri gefst og setja fætur upp á eitthvað eða jafnvel ennþá betra að leggjast og setja fæturna aðeins hærra.   Það getur einnig hjálpað að gera léttar fótæfingar svo sem að snúa ökklunum í hringi og teygja og rétta úr fótunum til skiptis.  Sund er einnig gott til að draga úr bjúg og getur veitt slökun og vellíðan.

Nú er barnið komið með táneglur og neglurnar á fingrunum geta náð fram fyrir fingurgómana og barnið getur því klórað sig nú þegar.  Barnið vegur nú um 2,3 kíló og lengd frá höfði að rófubeini er um 31 sm.




» 1 hafa sagt sína skoðun

06.07.2008 11:52:21 / stinatora

25 vikur komnar

Góðan daginn gott fólk.
Héðan úr þokunni er allt gott að frétta. Þokan er að vísu á undanhaldi, við erum farin að sjá yfir fjörðinn sem er mikil bót frá í gær þegar við sáum varla að næstu götu.

Núna eru bara 6 dagar þangað til prinsinn kemur til okkar aftur og erum við farin að hlakka mikið til.

Kúlubúinn stækkar og stækkar og er förugur með eindæmum. Það er alveg ótrúlegt hvað þetta litla kríli getur sparkað lengi og kröftuglega.

Við förum í sumarfrí á föstudaginn (eftir 6 daga) og erum farin að bíða og telja niður.

Hér koma smá upplýsingar frá ljosmodir.is um viku 25: 

Vika 25

Barnið getur verið farið að þrýsta á rifbeinin þín og einnig á meltingarveginn.  Þú getur fundið fyrir verkjum í síðunum vegna þess að legið er að stækka.

Barnið samsvarar sér mjög vel og líkist nú nýfæddu barni.  Það er nú þegar búið að koma sér upp sínu svefnmynstri og er venjulega vakandi þegar þú sefur og sefur þegar þú vakir því hreyfingar þínar hafa róandi áhrif á barnið.  Barninu gæti brugðið við háværa tónlist og byrjað að hreyfa sig.  Barnið vegur nú um 720 grömm og lengd frá höfði að rófubeini er um 22,5 sm.


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.06.2008 22:44:17 / stinatora

16 vikur og 6 dagar eftir

Úff þetta styttist og styttist. Ekki langt síðan við vorum að bíða eftir að fyrstu 12 vikurnar liðu svo hægt væri að tilkynna komu krílisins.
En héðan er allt gott að frétta. Við erum orðin ein í kotinu, Guðmundur Helgi fór til pabba síns og fjölskyldu þann 12. júní og kemur heim aftur 11. júlí. Þá hittumst við á Ólafsfirði og förum á Nikulásarmótið í fótbolta. Þegar það er búið þann 13. júlí þá ætlum við að skella okkur á naflann og vera hjá mömmu og Óla til 18. júlí. Þá verður haldið suður á bóginn til Reykjavíkur. Þar verður mjög stutt stopp, aðeins verður farið á búðarrölt og barnavagnar skoðaðir. Vonandi náum við að festa kaup á einum þeirra. Seinni part föstudagsins eða réttara sagt kl 18 fáum við lyklana afhenta af sumarbústað í Brekkuskógi sem að við ætlum að njóta lífsins í, í heila viku. Síðan verður haldið heim á leið á Vopnafjarðardaga. Vonandi munum við svo flytja í nýtt og stærra húsnæði einhverntímann á tímabilinu en væntanlega áður en að krílið kemur í heiminn.
Þangað til næst..........
Adios

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.06.2008 17:20:03 / stinatora

21 vika í dag.

Hæ hæ öll sömul.
Jæja þá er loksins komið að því að það eru færri vikur eftir en búnar eru og hægt er að fara að telja niður.
Sónarinn á mánudaginn var gekk mjög vel. Krílið vinkaði og sýndi ýmsar kúnstir fyrir stóra bróður, foreldrana og ömmu sína. Það sparkaði og veifaði eins og því væri borgað fyrir það. Allt kom mjög vel út og dafnar krílið vel. Mikið var yndislegt að sjá hjartað slá taktfast og vel þroskað.

Ég setti inn myndir af krílinu inn í myndaalbúmið þannig að ykkur er velkomið að skoða.

Kveðja frá Vopnó

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 11:08:25 / stinatora

Sumar og sól.

Góðan daginn.
Jæja þá erum við komin heim alsæl með ferðina.
Ferðin tókst mjög vel og veðrið var frábært allann tímann fyrir utan íslenskt slagveður (rok og rigning) síðasta daginn. Við skoðuðum borgina mikið og vorum orðin mjög flink á neðanjarðarlestakerfið. Fórum á alla túristastaðina og meira til. Gengum okkur upp að hnjám og rúmlega það.
Mikið verslað og þá aðallega á soninn sem var alsæll með foreldra sína þegar þau komu heim.

Þessa dagana er sól og sumarylur á Vopnafirði og nýt ég veðursins til hins ýtrasta. Ég er svo heppin að vinna á leikskóla og eru börnin mikið úti þegar veðrið er gott.

Svo er að styttast í 20 vikna sónarinn. Við förum á Akureyri næsta mánudag í sónarinn og get ég varla beðið eftir því. Hreiðar er orðinn virkilega spenntur að fá að sjá líka þar sem hann komst ekki með mér í hnakkaþykktarmælinguna.

Jæja þá er allt komið í bili.........
Bless bless.

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.04.2008 22:27:01 / stinatora

10 dagar.............

Jæja þá eru 10 dagar þangað til við hjónaleysin förum út til Barcelona og 15 dagar þangað yours trouly verður 35 ára.
Ég er orðin rosalega spennt að komast út og eiga góðan tíma úti með mínum heittelskaða. Hehehehehe að vísu eru allir tímar með honum góðir en þetta verður öðruvísi.
Ég fékk út úr hnakkaþykktarmælingunni í síðustu viku og krílið mitt er heilbrigt og ekki er ástæða til að ætla annars. Allar mælingar komu rosalega flott út.

13 vikna sónar.

Krílið dansaði fyrir okkur Ingurnar diskódans í gríð og erg, en svo þegar átti að skoða andlitið þá setti það bara hendurnar fyrir og varð feimið (alveg eins og pabbi sinn :d )

Nú er bara að bíða eftir 20 vikna sónarnum en það styttist í hann.

Guðmundur Helgi er rosaduglegur. Hann er farinn að hjóla í skólann eftir að snjórinn fór og finnst það skemmtilegt og hressandi. Mamman var nú ekki alveg til í að leyfa honum að hjóla einum svo fyrst og fylgdist vel með, en hann er dugnaðar strákur og foreldrum sínum til sóma (úff ein montin með sinn (en ég má alveg vera það)).

Á morgun er svo kleinubakstur hjá tengdó en ég má ekki hjálpa til. Bara vera þar og fylgjast með og smakka. Verð nú bara að segja það að Svenna kleinur blikkna í samanburði við þessar kleinur. Guðmundur er sammála mér. Hann segir að ömmukleinur séu þær bestu í heimi 8)
Tengdó var svo yndisleg að samþykkja að steikja fyrir mig kleinur til að fara með á kökubasarinn á sumardaginn fyrsta/á fimmtudaginn.
En þá er fjáröflunardagur hjá Slysavarnarsveitinni Sjöfn og er mikið um gleði og glaum þann dag. Ég var kosin í fjáröflunarnefndina á síðasta aðalfundi deildarinnar og var svo seinna kosin formaður nefndarinnar. Bara gaman að standa í þessu :s Nei nei þetta er mjög gaman.

Jæja þangað til næst.............
Bless bless


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 12:45:48 / stinatora

Jæja elskurnar mínar.......

Þá er komið að því að opinbera það sem farið er að heyrast á Hvammstanga.
Já ég stefni að því að fjölga mannkyninu í október næstkomandi.
Við systurnar erum duglegar þessa dagana. Erna systir á von á sér 4.sept og ég er sett 17. okt.
Þannig að þessi ælupest sem ég var að kvarta um í síðasta bloggi var ekki alvöru ælupest, heldur þessi 9 mánaða.
En heilsan er fín núna og er ég eins og blóm í ekki, þar sem stjanað er við mig á allan mögulegan hátt. Guðmundur Helgi bíður spenntur enda á hann von á 2 systkinum í haust og 3 frændsystkinum. Ekki slæmt.
Jæja þangað til næst..............
bless bless Stína

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 22:30:01 / stinatora

Af hverju ég? :^)

Hér ligg ég heima með pestina sem herjar á Vopnfirðinga þessa dagana. Þ.e.a.s upp og niður. EKKI GAMAN :evil:

En annars er allt gott að frétta héðan að austan. Við ætlum að eyða páskunum í höfuðborginni. Búin að redda íbúð og allt, á bara eftir að koma í ljós hverjir koma með.
Helgina eftir páska ætlum við hjónaleysin að skella okkur til Akureyrar í leikhúsferð með starfsmönnum leikskólans og mökum þeirra. Við ákváðum að gista á hóteli og verðum 2 nætur á Hótel Hörpu. Hlakka ekki lítið til.

Annars gengur allt hér sinn vanagang. Vinna, éta og sofa og vera til. Við erum farin að spá í að stækka við okkur í húsnæði því slotið sem við erum í er orðið ansi lítið og þröngt um okkur.

Hreiðar og Inga eru búin að loka búðinni og eru því aðeins tvær verslanir á Vopnafirði núna fyrir utan Olla sjoppu, en það er matvörubúðin Kauptún og Anný en þar fær maður bæði föt og getur látið hreinsa þau í leiðinni (er líka fatahreinsun).

Jæja tóm í bili.
See ya.

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 12:16:57 / stinatora

Jelly jelly jelly

Jæja þá er vikan búin.

Ég og Helga fórum 2x saman í ræktina en ég fór 1x ein. Enda er allt orðið að jellý eins og fyrirsögnin segir. En brátt mun það verða stinnara og minna umfangs. Jamm hér er aðhald í gangi og gengur bara alveg bærilega.

Nú ég er ennþá í vettvangsnámi á Bakkafirði, er hálfnuð með tímann. Ekki vildi betur til í gær á leiðinn heim að ég lenti útaf í hálku. Sem betur fer var ég á mjög litlum hraða og hvorki urðu slys á fólki né skemmdist bíllinn.       Mjög hvasst var á leiðinni og á Sandvíkurheiðinni keyrði ég á milli stika því ég sá ekki veginn fyrir skafrenningi. En sem betur fer er spáð rigningu eftir helgi þannig að vonandi fer þessari hálkutíð að ljúka.

Við hjónaleysin erum að fara til vinafólks okkar í kvöld að spila. Guðmundur ætlar að koma með en hann ætlar ekki að koma með okkur heim. Hann ætlar að leggjast í útlegð og ekki koma heim fyrr en á morgun. Það vill svo vel til að vinafólk okkar eru foreldrar besta vinar Guðmundar Helga og ætlar hann að gista þar í nótt :lol:

Jæja þá er búið að tæma í dag.

Þangað til næst..............................

Bless bless.


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 22:49:04 / stinatora

Nýtt ár, nýtt ár

Hellú hellú!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Jú hún er lifandi ennþá og farin að skrifa. Það getið þið þakkað henni litlu systur minni Ernu Sif.

Héðan er allt gott að frétta. Ég er í vettvangsnámi á leikskólanum á Bakkafirði. Það er rosalega gaman. Svolítið öðruvísi en ég er vön.

Guðmundur er alltaf jafn ánægður hér á Vopnafirði og gengur vel að aðlagast öllu hér á staðnum.

Við áttum yndisleg jól með fjölskyldu Hreiðars. Guðmundur Helgi fór til pabba síns og fjölskyldu annan í jólum og var fram á gamlársdag en kom þá með flugi heim.

Við hjónaleysin vorum því ein í kotinu þessa daga og höfðum það gott. Vakað lengi og sofið út og bara dúllað sér. Ég var í fríi á fimmtudeginum og þurfti því bara að vinna á föstudeginum. Hreiðar þessi elska tók sér frí á fimmtudeginum svo ég þyrfti ekki að vera ein heima (hann er bara yndislegur).

Áramótin voru haldin með pompi og prakt hér á Vopnó og vorum við í Hamrahlíðinni hjá tengdó. Feðgarnir (Hreiðar og Guðmundur Helgi) fóru svo út að skjóta og fannst þeim það ekki leiðinlegt. Ég og Helga mágkona stóðum hjá og horfðum á flugeldana sem skotið var upp bæði af þeim feðgum og svo sem bæjarbúar skutu upp. Verð ég nú að segja að mér fannst skotið heldur meira hér upp heldur en á Tanganum. 

 

Jæja þangað til næst...........................(verða ekki margir mánuðir þangað til, Erna ég lofa)

Bless bless 


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 09:21:37 / stinatora

Rjúpa hvað?????????

Jæja þá er rjúpnaveiðitímabilið byrjað (01.11) og hvað haldið þið. Nú bæði á laugardaginn og í gær fórum við hjónaleysin saman á rjúpu (ef hægt er að kalla það;). Á laugardaginn skönnuðum við svæðið við Vindfell og Hellisheiði en sáum ekkert nema bíla og veiðimenn. Á sunnudaginn fórum við norðan við Vopnafjörð nánar tiltekið á Sandvíkurheiði. Þar gegnum við smá spotta en sáum ekkert heldur. Þegar við komum heim fréttum við af því að frændi Hreiðars fór þar sem við vorum að sniglast á laugardaginn og fékk átta rjúpur :(

EN núna er ég mætt á Akureyri í skólann. Mánuðurinn verður þannig að ég verð á Akureyri frá sunnudagskvöldi og til seinni parts fimmtudags. Verður þetta mikil törn og ferðalög á milli en hvað gerir maður ekki til að geta verið með fjöldkyldunni og klára skólann.

Jæja þangað til næst................

Sjáumst.


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.10.2007 21:17:20 / stinatora

Í dag er sunnudagur.

Góða kveldið.

Ég er að komast að því að nýji heimabærinn minn er mjög veðursæll. Þegar er brjálað veður allt í kringum okkur er gott veður hér. Vaknaði í morgun við þær fréttir að það væri hálka og snjór nánast um allt. En hér á Vopnafirði var sól og blíða en svolítið kalt.

Í gærkvöldi vorum við hjónaleysin á árshátíð Vopnafjarðarhrepps. Skemmtum við okkur konunglega með vinum okkar. Maturinn var hinn fínasti. Í forrétt var fiskipaté, í aðalrétt var lambalæri og meðlæti og í eftirrétt var ostakaka með ferskum ávöxtum og rjóma. Eftirrétturinn kom á óvart þar sem að eftirrétturinn sem átti að vera týndist í flutningnum hingað til Vopnó. Og hefur hann ekki fundist enn eftir mikla leit hjá mínum manni og hótelstjóranum.

Í dag höfðum við það bara rólegt heima og röltum svo niðureftir til tengdó að ná í soninn. Þar komum við ekki að tómum kofanum frekar en venjulega og stóð tengdamamma í lummubakstri þegar við komum í hús. Var sonurinn mjög ánægður með dvölina hjá ömmu Laufey, Geir afa og Helgu frænku (sem var að passa hann og Pamelu). Þegar okkur bar að voru Helga og Guðmundur Helgi að þvo gluggana að utan og fannst erfðaprinsinum það ekki leiðinlegt að fá að sprauta á gluggana og ekki var verra þegar móðir hans leit út um gluggann til að athuga hvar drengurinn væri.

Ég verð á Akureyri meira og minna í nóvember (frá 5 nóv - 3 des) í skólanum. Ég fer á Akureyri á sunnudögum og heim aftur seinni partinn á fimmtudögum. Gulla vinkona er svo elskuleg að aumka sér yfir mig og veita mér skjól í þessari útlegð minni. Og kann ég henni bestu þakkir fyrir.

Þangað til næst.................

Sæl að sinni.


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 21:00:52 / stinatora

Lífið er dásamlegt

Eitthvað er nú farið að reka á eftir færslum frá mér ;)

En af okkur mæðginum er allt mjög gott að frétta. Við erum flutt á Vopnafjörð og erum að kynnast samfélaginu hér í bæ. Guðmundur er ánægður í skólanum, hann er kominn í tónlistarskóla og er að læra á blokkflautu og píanó. Ég er farin að vinna á leikskólanum Brekkubæ og í fjarnámi frá HA á leikskólabrautinni.

Ég verð nú að segja það að Vopnfirðingar hafa tekið okkur mjög vel og erum við mjög ánægð með það. Alltaf jafn gaman þegar einhver kemur og býður mann velkomin í bæinn og spjallar við mig eins og viðkomandi hafi þekkt mig lengi og kveður svo og ég hef ekki hugmynd um hver þetta eiginlega var. Eins og ég segi yndislegt fólk, en gleymir að þó þau viti hver ég er hef ég ekki minnsta grun um hver þau eru. ;)  :D 

Jæja þangað til næst...........

over and out


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Könnun
Hvort kynið er leigjandinn í kúlunni???
Stelpa
4 atkvæði

Strákur
2 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 6
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1198 dögum
Á krílið að koma í heiminn
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 17800